16.01.2007 14:18:19 / topaz
Vildi bara minna á :
- Nemedaráðsfundur þriðjudag kl: 16:00
- Opið hús þriðjudagskvöld 20:00-22:00
- Opið hús miðvikudagskvöld 20:00-22:00
- Opið hús fyrir 5.-7.bekk fimmtudag kl:17:00-18:00
- Nemendaráð ákveður frekari dagskrá og æfingar fyrir Mammút
fundi í dag.
- kv. Auður
»
16.01.2007 14:13:15 / topaz
Í morgun var fyrsti kaffimorgunninn í Tópas. Við mættum 5 hressar
kvensur og fengum okkur kaffi/kakó og spjölluðum um hitt og þetta.
Við vorum ýmist einar eða með börnin okkar. Við ætlum að endurtaka
leikinn á næsta þriðjudag milli kl: 10:00-12:00. Það eru allir
velkomnir og endilega ef þið vitið um einhvern sem langar út úr
húsi og hitta hresst fólk látið opnunartímann berast.
kv.Auður
»
09.01.2007 11:25:35 / topaz
Vil bara minna á nemendaráðsfundinn í dag kl: 16:00. Allir
velkomnir eins og vanalega. Við erum komin með nokkur atriði
á Mammút en vantar fleiri.
Auður
»
05.01.2007 00:46:18 / topaz
Það er opið hús í félagsmiðstöðinni Tópas Hafnargötu 9b
(Þróttarahúsið ,fyrir ofan listasmiðjuna) fyrir fólk sem er í
fæðingarorlofi eða heimavinnandi. Hægt er að fara í pool,
borðtennis, sing star , tefla ofl. Eða bara fá sér kaffibolla og
spjalla. Dót á staðnum fyrir börnin og heitt á könnunni. Opið frá
10:00-12:00. Allir velkomnir
»
04.01.2007 22:45:38 / topaz
Það er sundlaugarpartý í kvöld föstudag. Byrjar kl: 20:30 og
stendur til kl: 23:00. Endilega að kippa með sér tónlist á
geisladiskum, annars verður harmonikkudansleikur að hætti Obba og
það viljum við nú ekki ( ekki illa meint Obbi minn). Frítt inn. Það
eru komnar dagsetningar á Mammút og söngkeppina á Hólmavík.
Mammútur verður haldinn 26.janúar og Hólmavíkurkeppnin 26. febrúar.
Allir að grípa í gítarinn og hefja upp raust. Auður
»
02.01.2007 22:55:44 / topaz
Nú er hún gamla Grýla dauð , gafst hún upp á
rólunum. Hvaða rólum???
Þá eru jólin búin og komið nýtt ár , 2007. Eftir endalaust vesen
með hina síðuna okkar ákvað ég að byrja nýtt ár með nýrri síðu.
Til hamingju með það.
Félagsmiðstöðin opnar á morgun , miðvikudag kl: 20:00.
Það eru ekki komnar endanlegar dagsetningar en nú í janúar höldum
við í Tópas hæfileikakeppnina Mammút. Mammútur er meðal annars
haldinn með það fyrir augum að finna þrjú góð tónlistaratriði fyrir
söngkeppni Samfés , Vestfjarðaúrslit sem verða á Hólmavík í
febrúar.
Vestfirðingar eiga tvö sæti í lokakeppninni í Reykjavík í mars.
Allir að velja sér lög, eða æfa atriði einn eða með öðrum. Skráning
og æfingar fara á fullt mjög fljótlega.
kv. Auður
»